Veggofn m. örbylgjum, Siemens, Síðasta eintak
Svartur.
Ofnrými: 67 lítra.
19 ofnaðgerðir: 4D-heitur blástur, yfir- og undirhiti, glóðarsteiking með blæstri, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum, pítsaaðgerð, aðgerð fyrir frosinn mat (coolStart), undirhiti, eldun við lágt hitastig, forhitun, haldið heitu, vægur blástur, vægur ofnhiti, örbylgjur, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum + örbylgjur, glóðarsteiking með blæstri + örbylgjur, yfir- og undirhiti + örbylgjur, 4D-heitur blástur + örbylgjur.
Fimm styrkstig: 90 W, 180 W, 360 W, 600 W og 800 W.
Örbylgjurnar má nota stakar eða blanda þeim saman við aðrar ofnaðgerðir.
Hitastýring frá 30 - 300° C.
Ein útdragsbraut fylgir með sem þolir brennslusjálfhreinsun.
Snertihnappar.
Brennslusjálfhreinsun (activeClean®).
Gufuhreinsun (humidClean Plus).
Home Connect-appið: Wi-Fi og raddstýring.
Matreiðslutillögur (cookControl Plus)
Hraðhitun.
TFT-snertiskjár: Stór og skýr skjár.
Mjúkopnun og -lokun (softMove).
Öryggi: Barnaöryggi, innbyggð kælivifta.
Góð LED-lýsing.
Hiti á framhlið verður mestur 30° C miðað við ofnaðgerðina yfir- og undirhita á 180° C eftir eina klukkustund.
Fylgihlutir: Ein bökunarplata, ein grind og ein ofnskúffa.
Tækjamál (h x b x d): 59,5 x 59,4 x 54,8 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 58,5-59,5 x 56-56,8 x 55 sm.
Þegar eldað er með 4D heitum blæstri skiptir engu máli hvort maturinn er staðsettur uppi eða niðri í ofninum. Nýstárleg viftutækni sér um að dreifa hitanum á snjallan hátt um ofnrýmið, og tryggir alltaf góða útkomu.
Nú þarf enginn að strita við að þrífa ofninn sinn. Brennslusjálfhreinsun er aðgerð sem umbreytir fitu og matarögnum í ösku sem auðvelt er sópa út.
Með „cookControl Plus“ stillir þú inn réttinn og þyngdina og ofninn sér um að velja fullkomna stillingu fyrir þig!
„coolStart“-aðgerðin hitar ofninn í 175° C á innan við 5 mínútum. Kjörin stilling þegar hita skal frosinn mat á skömmum tíma. Ekki þarf að forhita ofninn áður en matnum er stungið inn - sparar bæði orku og tíma.
Með „humidClean Plus“ er þrif á ofninum þínum enn auðveldari. Bætið einfaldlega dropa af uppþvottaefni í 400 ml af vatni. Hellið blöndunni í miðjuna á botn ofnsins. Gætið þess að ofninn sé kaldur. Stillið á hreinsikerfið „humidClean Plus“ og látið ofninn sjá um rest. Þegar kerfinu er lokið má auðveldlega fjarlægja óhreinindin með klút, bréfþurrku eða mjúkum bursta.
Mjúkopnun og mjúklokun. Dempunarbúnaður tryggir að hurðin opnast og lokast varlega.
TFT-snertiskjárinn einfaldar val á ofnaaðgerðum. Læsilegur frá öllum hliðum.
Notendavænn TFT snertiskjárinn leiðir þig áfram skref fyrir skref með texta, myndum og hnöppum.
Sparið tíma með „varioSpeed“ aðgerðinni.
„varioSpeed“ aðgerðin sameinar hefðbundnar hitunaraðgerðir og örbylgjur. Með því getur eldurnartíminn styst um allt að 50%.
Án þess að fórna gæðum eða bragði matarins. Frábær eldamennska en bara miklu hraðari.
Biddu Amazon Alexu um að opna hurðina.
Ertu með fullar hendur og getur ekki opnað ofninn? Núna getur þú beðið Amazon Alexu um að gera það fyrir þig. Ofninn opnast með „voiceControl“ aðgerðinni og þú rennir matnum inn í ofninn.