Veggofn með gufu, Siemens, Sýningareintak
Svart stál („blackSteel“).
Ofnrými: 71 lítra.
19 ofnaðgerðir: 4D-heitur blástur, vægur heitur blástur, yfir- og undirhiti, vægur undirhiti, glóðarsteiking með blæstri, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum, pítsaaðgerð, aðgerð fyrir frosinn mat („coolStart“), undirhiti, kerfi fyrir lágt hitastig, forhitun á leirtaui og haldið heitu.
Hitunaraðferðir með gufu.
steamBoost: Kraftmikil gufa í 3 mín.
Nákvæm hitastýring frá 30 - 300° C.
Ein útdragsbraut fylgir með sem þolir brennslusjálfhreinsun.
Hagnýtar ofnaðgerðir: Tillögur að hitastigi, sýnir raunhitastig inni í ofninum, haldið heitu.
Matreiðslutillögur („cookControl Plus“), kjöthitamælir (perfectRoast plus) og . bakstursskynjari (PerfectBake plus).
TFT-snertiskjár með texta og myndum.
Mjúkopnun og -lokun.
Rafeindaklukka.
Brennslusjálfhreinsun („activeClean“).
Gufuhreinsun (humidClean Plus).
Home Connect-appið: Wi-Fi og raddstýring.
LED-lýsing.
Hraðhitun.
Öryggi: Barnaöryggi, innbyggð kælivifta og slekkur sjálfkrafa á sér.
Hiti á framhlið verður mestur 30° C miðað við ofnaðgerðina yfir- og undirhita á 180° C eftir eina klukkustund.
Tækjamál (h x b x d): 59,5 x 59,4 x 54,8 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 58,5-59,5 x 56-56,8 x 55 sm.
Þegar eldað er með 4D heitum blæstri skiptir engu máli hvort maturinn er staðsettur uppi eða niðri í ofninum. Nýstárleg viftutækni sér um að dreifa hitanum á snjallan hátt um ofnrýmið, og tryggir alltaf góða útkomu.
Nú þarf enginn að strita við að þrífa ofninn sinn. Brennslusjálfhreinsun er aðgerð sem umbreytir fitu og matarögnum í ösku sem auðvelt er sópa út.
Með „cookControl Plus“ stillir þú inn réttinn og þyngdina og ofninn sér um að velja fullkomna stillingu fyrir þig!
„coolStart“-aðgerðin hitar ofninn í 175° C á innan við 5 mínútum. Kjörin stilling þegar hita skal frosinn mat á skömmum tíma. Ekki þarf að forhita ofninn áður en matnum er stungið inn - sparar bæði orku og tíma.
Stökkari og safaríkari matreiðsla með viðbættum gufuskotum með „pulseSteam“.
Þrír mismunandi styrkleikar hjálpa þér að elda úrval rétta eins og best verður á kosið. Gufuskotum er bætt við hefðbundnar hitunaraðgerðir. Yfirborð matvælanna stökt og um leið safaríkt að innan. Einnig tilvalið að nota til að hita upp mat.
Þrír hitanemar gefa þér nákvæmar og traustverðar mælingar á hitastigi kjötsins. Mælirinn hentar fyrir alls kyns (kjöt)rétti. Má einnig nota í örbylgju- og gufustillingu.
Mjúkopnun og mjúklokun. Dempunarbúnaður tryggir að hurðin opnast og lokast varlega.
TFT-snertiskjárinn einfaldar val á ofnaaðgerðum. Læsilegur frá öllum hliðum.
Notendavænn TFT snertiskjárinn leiðir þig áfram skref fyrir skref með texta, myndum og hnöppum.