Gufuofn, Siemens, studioLine
Svartur – „blackSteel studioLine“.
Ofnrými: 47 lítra.
Fjöldi ofnaðgerða: 4D-heitur blástur, yfir- og undirhiti, glóðarsteiking með blæstri, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum, pítsaaðgerð, aðgerð fyrir frosinn mat („cool start“), undirhiti, eldun við lágt hitastig, forhitun, haldið heitu, vægur blástur, vægur ofnhiti.
Hitunaraðgerðir með gufu: 100% gufa („fullSteam“), gufuskot (pulseSteam“), upphitun, gerjun, þíðing, sous-vide matreiðsla, glóðarsteiking með blæstri, blástur, 4D-heitur blástur + gufa, yfir og undirhiti.
Kjöthitamælir „perfectRoast plus“.
Hraðhitun.
Hitastýring frá 30 - 250° C.
Ein útdragsbraut fylgir með („varioClip“).
Snertihnappar.
Glerhandfang („studioLine“).
Hreinsiplötur í bakhlið („ecoClean“).
Gufuhreinsun („humidClean Plus“).
Slétt hurð úr gleri (auðveldar þrif).
Raddstýring.
TFT-snertiskjár með texta og myndum.
Hagnýtar ofnaðgerðir: Tillögur að hitastigi, sýnir raunhitastig inni í ofninum.
Matreiðslutillögur („cookControl Plus).
LED-lýsing.
Home Connect-appið: Wi-Fi.
Mjúkopnun og -lokun („softMove“).
Tækjamál (h x b x d): 45,5 x 59,4 x 54,8 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 45 - 45,5 x 56-56,8 x 55 sm.
Þegar eldað er með 4D heitum blæstri skiptir engu máli hvort maturinn er staðsettur uppi eða niðri í ofninum. Nýstárleg viftutækni sér um að dreifa hitanum á snjallan hátt um ofnrýmið, og tryggir alltaf góða útkomu.
Með „cookControl Plus“ stillir þú inn réttinn og þyngdina og ofninn sér um að velja fullkomna stillingu fyrir þig!
„coolStart“-aðgerðin hitar ofninn í 175° C á innan við 5 mínútum. Kjörin stilling þegar hita skal frosinn mat á skömmum tíma. Ekki þarf að forhita ofninn áður en matnum er stungið inn - sparar bæði orku og tíma.
Hollari og bragðbetri gufusoðinn matur.
„fullSteam“ aðgerðin eldar matinn þinn á mildan hátt og um leið heldur maturinn næringargildum sínum og bragð.
Einnig hægt að nota lofttæmda sous-vide poka til að halda betur bragð og ilm matvælanna.
Stökkari og safaríkari matreiðsla með viðbættum gufuskotum með „pulseSteam“.
Þrír mismunandi styrkleikar hjálpa þér að elda úrval rétta eins og best verður á kosið. Gufuskotum er bætt við hefðbundnar hitunaraðgerðir. Yfirborð matvælanna stökt og um leið safaríkt að innan. Einnig tilvalið að nota til að hita upp mat.
Þrír hitanemar gefa þér nákvæmar og traustverðar mælingar á hitastigi kjötsins. Mælirinn hentar fyrir alls kyns (kjöt)rétti. Má einnig nota í örbylgju- og gufustillingu.
Mjúkopnun og mjúklokun. Dempunarbúnaður tryggir að hurðin opnast og lokast varlega.
TFT-snertiskjárinn einfaldar val á ofnaaðgerðum. Læsilegur frá öllum hliðum.
Notendavænn TFT snertiskjárinn leiðir þig áfram skref fyrir skref með texta, myndum og hnöppum.
Biddu Amazon Alexu um að opna hurðina.
Ertu með fullar hendur og getur ekki opnað ofninn? Núna getur þú beðið Amazon Alexu um að gera það fyrir þig. Ofninn opnast með „voiceControl“ aðgerðinni og þú rennir matnum inn í ofninn.