Kæliskápur, Bosch, Serie 4
Eiginleikar:
Svartur.
Orkuflokkur E, 116 kwst. á ári.
Nýtanlegt rými samtals: 346 lítrar.
Breytileg hurðaropnun.
Stillifætur að framan, hjól að aftan.
Einstaklega hljóðlátur: 39 dB (re 1 pW).
Kælir:
Rafeindastýring.
„freshSense“: Jafnt hitastig tryggt með rafeindaskynjun.
Hraðkæling með sjálfvirkri endurstillingu.
Sjö hillur úr öryggisgleri, þar af fimm færanlegar.
Fimm hillur í hurð.
Öflug kæling með kæliviftu.
„VitaFresh“-skúffa fyrir grænmeti og ávexti: Tryggir ferskleika grænmetis og ávaxta lengur.
Krómaður flöskurekki.
LED-lýsing.
Mál (h x b x d): 186 x 60 x 65 sm.
Kemur í veg fyrir að flöskurnar rúlli um ísskápinn. Traustur og úr ryðfríu stáli. Má fjarlægja.
Allar hillurnar eru gerðar úr mjög sterku öryggisgleri sem er auðvelt að þrífa. Ef ílát með vökva veltur um koll, kemur hönnunin á hillunum í veg fyrir að það sullist niður á næstu hillur fyrir neðan.
„freshSense“ tæknin sér um að jafna hitastigið í skápnum með sérstökum skynjurum. Þannig helst matvaran ferskari, lengur.
Aflangir LED-ljósgjafar varpa þægilegri birtu á innihald kæliskápsins.
Þrýstu á hraðkælingarhnappinn („superCooling“) til að koma hitastiginu hratt niður í +2 °C. Gagnast vel þegar halda á mat sem er inni í skápnum kældum þegar ókældum mat er komið fyrir í skápnum.