Kæliskápur, Siemens, iQ500
Neysla og afköst:
Orkuflokkur E.
Raforkunotkun á ári: 116 kWst.
Hönnun og þægindi:
Framhlið í svörtu stáli („blackSteel“), hliðar í antrasít.
Sérlega björt LED-lýsing.
Rafeindastýrður hitastillir.
Handfang í stáli.
Kælir:
Nýtanlegt rými: 346 lítrar.
Öflug kæling með kæliviftu.
Hraðkæling með sjálfvirkri endurstillingu.
„freshSense“: Jafnt hitastig tryggt með rafeindaskynjun.
Sjö hillur úr öryggisgleri, þar af fjórar færanlegar.
Ein „hyperFresh“-skúffa fyrir grænmeti og ávexti. Ein „freshBox“-skúffa.
Innan í kælihurð: Fimm hillubakkar, þar af einn færanlegur upp og niður („easyLift“).
Krómaður flöskurekki.
Tæknileg atriði:
Breytileg hurðaropnun.
Stillifætur að framan, hjól að aftan.
Hljóð: 39 dB (re 1 pW).
Mál (h x b x d): 186 x 60 x 65 sm.
Í „hyperFresh“-skúffunni má stilla rakastigið með rennisleða. Rétt rakastig heldur innihaldi skúffunnar fersku í lengri tíma, hvort sem það er spergilkál, bláber eða lambhagasalat.
Allar hillurnar eru gerðar úr mjög sterku öryggisgleri sem er auðvelt að þrífa. Ef ílát með vökva veltur um koll, kemur hönnunin á hillunum í veg fyrir að það sullist niður á næstu hillur fyrir neðan.
„freshSense“ tæknin sér um að jafna hitastigið í skápnum með sérstökum skynjurum. Þannig helst matvaran ferskari, lengur.
Aflangir LED-ljósgjafar varpa þægilegri birtu á innihald kæliskápsins.