Klæðanlegur kæliskápur m. innb. fr. Siemens, iQ300
Neysla og afköst:
Orkuflokkur E.
Raforkunotkun á ári: 177 kwst.
Hljóð: 39 dB (re 1 pW).
Hönnun og þægindi:
Rafeindastýring.
Sérlega björt LED-lýsing.
Breytileg hurðaropnun.
Hljóðvörun ef hitastig fer niður fyrir ákveðið gildi.
Kælir:
Nýtanlegt kælirými samtals 246 lítrar.
Sex hillur með öryggisgleri, þar af fjórar færanlegar.
Krómaður flöskurekki.
Hraðkæling.
Tvær „hyperFresh”-skúffur fyrir grænmeti og ávexti sem tryggir ferskleika lengur.
„freshSense“: Jafnt hitastig tryggt með rafeindaskynjun.
Frystir:
Fjögurra stjarna frystihólf.
Nýtanlegt rými: 34 lítrar.
Hraðfrysting með sjálfvirkri endurræsingu.
Geymslutími við straumrof: 18 klst.
Tækjamál (h x b x d): 177 x 54 x 55 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 177,5 x 56 x 55 sm.
Í „hyperFresh“-skúffunni má stilla rakastigið með rennisleða. Rétt rakastig heldur innihaldi skúffunnar fersku í lengri tíma, hvort sem það er spergilkál, bláber eða lambhagasalat.
Allar hillurnar eru gerðar úr mjög sterku öryggisgleri sem er auðvelt að þrífa. Ef ílát með vökva veltur um koll, kemur hönnunin á hillunum í veg fyrir að það sullist niður á næstu hillur fyrir neðan.
„freshSense“ tæknin sér um að jafna hitastigið í skápnum með sérstökum skynjurum. Þannig helst matvaran ferskari, lengur.
Aflangir LED-ljósgjafar varpa þægilegri birtu á innihald kæliskápsins.
Þrýstu á hraðkælingarhnappinn („superCooling“) til að koma hitastiginu hratt niður í +2 °C. Gagnast vel þegar halda á mat sem er inni í skápnum kældum þegar ókældum mat er komið fyrir í skápnum.
Þrýstu á hraðfrystingarhnappinn („superFreezing“) til að koma hitastiginu hratt niður í -30 °C. Gagnast vel þegar halda á mat sem er inni í skápnum frosnum þegar ókældum mat er komið fyrir í skápnum.