Baksturs- og örbylgjuofn, Siemens, studioLine
Svartur (blackSteel, studioLine).
Ofnrými: 45 lítra.
15 ofnaðgerðir:
Yfir- og undirhiti, glóðarsteiking með blæstri, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum, undirhiti, forhitun, vægur blástur, vægur ofnhiti, heitur blástur, örbylgjur, glóðarsteiking með hálfum eða öllum hitagjafanum + örbylgjur, glóðarsteiking með blæstri + örbylgjur, yfir- og undirhiti + örbylgjur, heitur blástur.
Fimm styrkstig: 90 W, 180 W, 360 W, 600 W og 900 W.
Örbylgjurnar má nota stakar eða blanda þeim saman við aðrar ofnaðgerðir (varioSpeed).
Tímasparnaður: varioSpeed-aðgerðin sameinar hefðbundnar hitunaraðgerðir og örbylgjur. Við þetta sparast mikill tími (allt að 50% tímasparnaður).
Hitastýring frá 30 - 230° C.
Snertihnappar.
Glerhandfang („studioLine“).
Gufuhreinsun.
Home Connect-appið: Wi-Fi.
Raddstýring.
Matreiðslutillögur (cookControl Plus).
Hraðhitun.
TFT-snertiskjár.
Mjúkopnun og -lokun (softMove).
Öryggi: Barnaöryggi, innbyggð kælivifta.
Góð LED-lýsing.
Hiti á framhlið verður mestur 40° C miðað við ofnaðgerðina yfir- og undirhita á 180° C eftir eina klukkustund.
Fylgihlutir: Ein bökunarplata og ein grind fylgja með.
Tækjamál (h x b x d): 45,5 x 59,4 x 54,8 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 45-45,5 x 56-56,8 x 55 sm.
Home Connect-appið gerir þér kleift að tengjast þráðlaust heimilistækjum frá Siemens á auðveldan og þægilegan hátt hvort sem þú ert í vinnunni, á ferðalagi eða situr í sófanum heima.
Með Home Connect-appinu eru Siemens heimilistækin aldrei lengra frá þér en snjallsímimn eða spjaldtölvan. Kveiktu á ofninum þegar þú ert á leiðinni heim, athugaðu hvort þvottavélin er búin að þvo eða fáðu dásamlegar uppskriftir að kvöldmatnum inni á recipeWorld.
Home Connect-appið er fyrir þig og aðra þá sem þrá lausnir sem einfalda lífið.
Með „cookControl Plus“ stillir þú inn réttinn og þyngdina og ofninn sér um að velja fullkomna stillingu fyrir þig!
Mjúkopnun og mjúklokun. Dempunarbúnaður tryggir að hurðin opnast og lokast varlega.
TFT-snertiskjárinn einfaldar val á ofnaaðgerðum. Læsilegur frá öllum hliðum.
Notendavænn TFT snertiskjárinn leiðir þig áfram skref fyrir skref með texta, myndum og hnöppum.
Sparið tíma með „varioSpeed“ aðgerðinni.
„varioSpeed“ aðgerðin sameinar hefðbundnar hitunaraðgerðir og örbylgjur. Með því getur eldurnartíminn styst um allt að 50%.
Án þess að fórna gæðum eða bragði matarins. Frábær eldamennska en bara miklu hraðari.
studioLine. Einstök tæki frá Siemens.
Hugmyndafræðin að baki studioLine er að bjóða upp á úrval af glæsilegum vörum með allra nýjustu tækni.
Siemens hefur þróað úrvalsvörur handa þeim sem vilja hárnákvæmt jafnvægi á milli nýsköpunar og stílhreinnar, tímalausrar hönnunar.