Þvottavél, Siemens, iQ500
Siemens þvottavél, iQ500.
Stjórnborð á íslensku og Norðurlandamálum fylgja.
Neysla og árangur:
Tekur mest 9 kg.
Orkuflokkur A.
Raforkunotkun: 49 kwst.
Vatnsnotkun: 50 lítrar.
Vinduhraði: 400 til 1400 sn./mín.
Hljóð við vindingu: 71 dB.
Þvottakerfi og sérkerfi:
Venjuleg kerfi: Bómull, straufrítt, viðkvæmt og ull.
Sjálfvirkt þvottakerfi.
Sérkerfi: Sjálfvirkt vægt, tromluhreinsun, útifatnaður,þeytivinding/dæling, blandaður þvottur, skolun og hraðkerfi 15/30 mín.
varioSpeed: Tímastytting án þess að það komi niður á þvottahæfni.
i-Dos: Sjálfvirk skömmtun fyrir fljótandi þvottaefni.
smartFinish: Dregur úr krumpum, sérstaklega ætlað fyrir jakkaföt, skyrtur og blússur.
Blettakerfi fyrir fjóra ólíka bletti.
Hönnun og þægindi:
XXL tromla: 65 lítrar.
Snertihnappar.
Stór LED-skjár.
waveDrum: Bylgjulaga tromla sem tryggir bestu meðferð á fötum.
antiVibration Design: Hönnun sem tryggir stöðugleika og minna hljóð.
Tækni og öryggi:
Hljóðlátur, kolalaus mótor með 10 ára ábyrgð.
waterPerfectPLUS: Umhverfisvænt kerfi, sem notar minna vatn en venjulega.
Barnalæsing.
Mál: 845 x 598 x 590 mm.
Hönnunin á hliðum vélarinnar er ekki einungis flott heldur tryggir hún einnig meiri stöðugleika og minni hristing en áður. Lagt hefur verið mikið kapp á að lágmarka hávaða frá vélinni og þeytivindingin hefur aldrei verið hljóðlátari.
Fyrsta innbyggða skömmtunarkerfið frá Siemens metur nákvæmlega hversu mikið af fljótandi þvottaefni þarf fyrir hvern þvott. Kerfið metur magnið með tilliti til ólíkra þátta, m.a. áferð og magns þvottarins, og notar efnið til hinsta dropa. Mjög mikilvægt er að þvottaefni sé skammtað rétt því að röng skömmtun getur valdið því að þvottur þvoist illa eða skemmist. Einnig er umhverfisvænna að nota hæfilegt magn þvottaefnis.
Blettakerfi fyrir fjölda tegunda bletta (t.d. kaffiblett, blóðblett, rauðvínsblett o.s.frv.).
Kerfið virkar á fjölda tegunda bletta án þess að þurfa að nota blettahreinsiefni. Jafnvel þó að það sé rauðvín á hvítum bol eða grasblettir á buxum barnanna mun kerfið velja rétt hitastig, hraða trommunnar og hversu lengi þvotturinn á að liggja í bleyti og blettirnir hverfa sporlaust.
Þvottavélin er knúin áfram af byltingarkenndum iQdrive-mótor sem er hljóðlátur, hraður og skilvirkur. iQdrive-mótorinn notar núningsfrían segulmótor sem minnkar orkunotkun. Kolalaus og með 10 ára ábyrgð.
Þvottakerfi sem er sérstaklega þróað fyrir vatnsheldan útifatnað. Vægur þvottur sem ver viðkvæmt og lagskipt efnið sem hann er gerður úr. Hiti og vinding er þannig háttað að þvotturinn fari sem best með fatnaðinn.
Ef þurr þvottur er krumpaður er þvottavélakerfið smartFinish rétta svarið. Mild gufa dregur úr krumpum og því fer minni tími í straujun. smartFinish sér um að eyða miklum krumpum verulega á innan við tuttugu mínútum. Það með er komið nýtt hjálpartól í baráttuna við krumpurnar.
„varioSpeed“: Hægt að stytta tímann á þvottakerfum um allt að 65% án þess að það komi niður á þvottahæfni.